Helgiganga var gengin í dag frá Bessastaðakirkju í Garðakirkju á Álftanesi. Gangan hófst klukkan 16 og klukkan 17 hefst helgistund í Garðakirkju með Passíusálmalestri.
Séra Jóna Hrönn Bolladóttir gekk í fararbroddi göngufólksins þegar lagt var af stað frá Bessastaðakirkju. Farið var yfir píslargöngu Krists á leiðinni.