Kosningaloforðafólkið vandamál

Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason alþingismenn.
Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason alþingismenn.

Lilja Mósesdóttir, alþingismaður, gagnrýnir íslenska pólitík harðlega á Facebook-síðu sinni í dag og segir að í henni sé litið á þá sem vandamál sem vilji efna kosningaloforð en ekki þá „sem eru tilbúnir að svíkja þau fyrir stóla og völd.“ Ekki verður betur séð en að þeim orðum sé beint að fyrrum félögum í þingflokki Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs.

„Sífellt er hamrað á því hversu stórt vandamál kosningaloforðafólkið er – ekki síst sem persónur. Sem betur fer lætur almenningur ekki blekkjast af sögusögnum og metur þingmenn út frá baráttu þeirra fyrir hagsmunum almennings,“ segir Lilja.

Facebook-síða Lilju Mósesdóttur

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert