Verð á bensíni hefur hækkað í dag hjá fjórum olíufélögum miðað við daginn í gær. Þannig kostar lítrinn af bensíni hjá N1 241,4 krónur í dag í almennri afgreiðslu, hjá Atlantsolíu 240,9 krónur, hjá Orkunni 240,8 krónur og hjá ÓB 240,90 krónur.
Í gær kostaði bensínlítrinn á bilinu frá 238 til 238,40 króna á þessum stöðvum.