Opnunartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru haldnir í Hörpu í kvöld. Tónlistar- og ráðstefnuhúsið er nokkuð frábrugðið fyrstu hugmyndum um húsið sem kynntar voru í september 2005.
Upphafleg hugmynd Portusar gerði t.d. ráð fyrir þremur sölum í húsinu en þeir urðu fjórir á endanum. Upphaflega var gert ráð fyrir að stofnkostnaður við smíði nýja tónlistar- og ráðstefnuhússins, gæti orðið um 8,5 milljarðar króna.
Upphafleg tillaga Portusar, sem hreppti hnossið, gerði ráð fyrir að stofnkostnaður yrði um 12,5 milljarðar króna. Hann verður líklega um 27,5 milljarðar króna.
Bein útsending frá opnunartónleikunum hefst á rás 1 í Ríkisútvarpinu klukkan 19.57.
Kynningarmyndband Portusar frá september 2005
Myndasyrpa sem sýnir upphaflegar hugmyndir um útlit