Karlmaður hefur verið kærður fyrir að hafa reynt að nauðga 19 ára gamalli stúlku á Austurvelli í Reykjavík aðfaranótt sunnudags. Stúlkan var á ferð með vinahópi sem hún varð viðskila við og sætti árásarmaðurinn þá lagi.
Að sögn lögreglu hefur maðurinn játað á sig verknaðinn.
Nokkuð var liðið á nóttina og því fólki á ferli farið að fækka þegar árásin átti sér stað. Maðurinn, sem er fæddur árið 1981, veittist að stúlkunni þegar hún hafði orðið viðskila við hópinn sem hún var með og reyndi að nauðga henni.
Stúlkan greindi vinum sínum frá því sem gerst hafði og jafnframt að árásarmaðurinn væri í grenndinni áður en hún fór á neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb nauðgunar.
Sjónarvottar sáu bílnúmer mannsins, sem gerði eftirleik lögreglu auðveldan. Maðurinn var handtekinn á heimili sínu og hefur játað verknaðinn. Hann var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á laugardag, en rannsókn málsins stendur yfir.