Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, mun leysa Katrínu Jakobsdóttur af sem menntamálaráðherra en Katrín fer í barneignarleyfi síðar í mánuðinum. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins.
Þá var samþykkt á þingflokksfundi Vinstri grænna í dag, að Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra leysa Katrínu af sem
samstarfsráðherra Norðurlandanna.