Herjólfur mun sigla á Landeyjahöfn á morgun, laugardaginn 7. maí, samkvæmt áður auglýstri áætlun, að því er Eimskip tilkynnir.
Siglt verður frá Vestmannaeyjum klukkan 7.30 og úr Landeyjahöfn klukkan 9.00. Næsta ferð frá Vestmannaeyjum verður klukkan 18.00 og úr Landeyjahöfn klukkan 19.30. Síðasta ferðin á morgun verður frá Eyjum klukkan 21.00 og úr Landeyjahöfn klukkan 22.30.