Þráinn Bertelsson, þingmaður Vinstri grænna, fer hörðum orðum um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í umræðum á Facebook-síðu sinni, sem er opin öllum. Þar segist Þráinn vera orðinn afar pirraður á Þorgerði sem hann kallar m.a. „kúlulána- og íhaldsbelju“.
Mikil umræða hefur spunnist á síðu Þráins í tengslum við færslu sem hann skrifar um sín launamál. „Ef einhver heldur að ég geti lifað á kaupinu mínu sem alþingismaður er svarið NEI? Síðan ég tók sæti á Alþingi hef ég sjálfur borgað með mér,“ skrifar Þráinn, sem er níundi þingmaður Reykjavíkurkjördæmis Norður.
Hann segir að svarið við því hvort hann sé á tvöföldum launum, verandi á heiðurslaunum Alþingis, sé bæði já og nei. Hann tekur fram að heiðurslaun Alþingis séu ekki laun heldur viðurkenning og bendir á að starfslaun listamanna séu tæp 300.000 en heiðurslaun Alþingis tæp 140.000.
„Það var kúlulaunadrottninginn (þúsund
milljónir eða voru það níu hundruð og níutíu) Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir sem byrjaði á að gera það tortryggilegt að
heiðurslaunalistamaður tæki sæti á Alþingi án þess að afsala sér
heiðurslaunum á meðan,“ skrifar Þráinn.
„Þetta byrjaði í Silfri Egilis rétt eftir kosningar. Þá benti kúlulána- og íhaldsbeljan Þorgerður Katrín á að það eina sem ég hefði á minni sakaskrá væri að ég Alþingi Íslendinga hefði veitt mér heiðurslaun.“
Umræðan á Facebook-síðu Þráins.