Talsverður erill var hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í nótt en það sinnti um 25 sjúkraflutningum. Þá var slökkviliðið kallað út vegna elds í sinu í Elliðaárdal. Þegar að var komið reyndist eldur loga í áningarbekk í svonefndu „Indíánagili“ neðan við Bakkahverfið í Breiðholti.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn í bekknum.
Hjá Lögreglu höfuðborgarsvæðisins fengust þær fréttir að nóttin hafi verið einstaklega róleg.