Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum hefur nú formlega fengið opinbert merki. Er merkið sett saman úr nokkrum mismunandi eigindum sem vísa í hátíðina, Vestmannaeyjar, og hefðina að baki hátíðinni.
Í merkinu er lundi með kórónu, sem talsmenn hátíðarinnar segja vísa til þess, að Þjóðhátíð sé konungur útihátíðanna. Kórónan er samsett úr eldi og flugeldum, sem er skírskotun í brennuna og flugeldasýninguna, tvo hefðbundna dagskrárliði. Þá vísi grænn litur merkisins vísar til Vestmannaeyja.
Merkið var hannað af Heiðari Þór Jónssyni, grafískum hönnuði hjá Vert markaðsstofu.