Skrifuðu undir en höfnuðu vöfflum

Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar - stéttarfélags.
Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar - stéttarfélags. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Fulltrúar Framsýnar og Verkalýðsfélags Þórshafnar og Samtaka atvinnulífsins skrifuðu undir kjarasamning fyrir félagsmenn á almennum vinnumarkaði klukkan sex síðdegis. Kjarasamningurinn tekur gildi 1. júní næstkomandi og gidlir til ársins 2013.

Samningurinn byggir þeim samningum sem gerðir voru á vegum aðildarfélaga ASÍ auk viðauka sem byggir á sérkröfum Framsýnar og VÞ.

Á vefsvæði Framsýnar segir að þrátt fyrir háværar kröfur um að lágmarkslaun hækki í kr. 200.000 kr. við undirritun þá þverneituðu fulltrúar SA að verða við því.  Vegna óánægju með að þessari sanngjörnu kröfu hefði verið hafnað svo afdráttarlaust af SA ákváðu fulltrúar félaganna að hafna vöfflukaffi, sem hefð er fyrir að bjóða upp á við undirritun kjarasamninga í karphúsinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert