Smyr sér hatt og étur hann

Poppkóngurinn Páll Óskar.
Poppkóngurinn Páll Óskar. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

„Það geta allir unnið þessa keppni og þetta sýnir að það má ekki gefast upp fyrr en eftir síðasta umslag,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson sem sagði við Morgunblaðið fyrr í dag að hann skyldi éta hattinn sinn ef Ísland kæmist áfram. Í samtali við Morgunblaðið í kvöld sagðist hann „smyrja hattinn sinn og éta hann með glöðu geði.“

„Ég átti alls ekki von á þessu, hélt að við værum að fara drukkna í þessum riðli,“ segir Páll Óskar og bætir við að úrslitin hafi komið honum sérstaklega ánægjulega á óvart.

Páll bendir á hvaða þjóðir sátu eftir, s.s. Tyrkland, Armenía og Albanía, sem voru taldar mjög líklegar til að komast áfram. Auk þess er hann ánægður með hvaða þjóðir komust áfram sem ekki voru taldar neitt svakalega líklegar til þess. „Það kom á óvart að Finnland komst áfram og Litháen og reyndar Sviss líka, hún söng þetta mjög vel og virkaði svolítið eins og sæta stúlkan í næsta húsi.“

Páll Óskar var búinn að spá fyrir um hvaða þjóðir kæmust áfram og hafði hann sex þjóðir réttar en fjórar vitlausar. Það er sama hlutfall og í þáttunum Alla leið á RÚV.

Að endingu bendir Páll á, að hann verður í viðtali á Bylgjunni í fyrramálið og reiknar hann með að snæða hatt sinn í beinni útsendingu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert