Í fangelsi fyrir búðahnupl

mbl.is/Þorkell

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt hálffimmtuga konu í 2 mánaða fangelsi fyrir að stela snyrtivörum úr verslun Hagkaups í Kringlunni. Snyrtivörurnar kostuðu rúmlega 6 þúsund krónur.

Konan játaði brot sitt. Fram kemur í dómnum, að hún hefur þrisvar áður verið dæmd fyrir þjófnað, síðast fyrir réttu ári en þá var hún dæmd í 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Hún rauf því skilorðið og þarf því að afplána fangelsisvist nú.   

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert