Öllum skipverjum á Sólbak EA, ísfisktogara Brims, um 20 manns, hefur verið sagt upp störfum.
Á vef Vikudags kemur fram, að þetta hafi verið tilkynnt á fundi með skipverjum fyrir brottför frá Akureyri í gær. Skipverjarnir eru með misjafnlega langan uppsagnarfrest, frá einum og upp í sex mánuði en að flestir eru með þriggja mánaða uppsagnarfrest.
Dótturfélag Samherja keypti eignir Brims á Akureyri nýlega og hefur vefurinn eftir Karli Má Einarssyni, útgerðarstjóra Brims, að uppsagnirnar tengist þeim breytingum. Nýir eigendur hafi þá svigrúm til að hagræða, telji þeir þörf á því.