Keypti hús á 100 krónur

Húið sem selt var á 100 krónur. Myndin er af …
Húið sem selt var á 100 krónur. Myndin er af vefnum vikara.is.

Bæjarráð Bolungarvíkur samþykkti á fundi í vikunni þriðjudag að kaupa fasteignina að Hafnargötu 47 í bænum. Á vefnum vikari.is segir að húsið sé í daglegu tali kallað „Kitta Summa búð" en kaupverðið var 100 krónur.

Fram kemur á vefnum, að fyrr í vetur var eiganda hússins veitt heimild til til að rífa það og verð að teljast líklegt að bæjaryfirvöld nýti sér þá heimild enda sé ástand húsins orðið ansi bágborið.

Vikari.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert