Efnahags- og viðskiptaráðherra, Árna Páli Árnasyni, var í morgun afhend skýrsla sérstakrar nefndar sem falið var að meta kosti og galla þess að draga úr vægi verðtryggingar í íslensku fjármálakerfi, án þess að fjármálastöðugleika sé ógnað. Formaður nefndarinnar, Eygló Harðardóttir þingmaður Framsóknarflokksins, afhenti ráðherranum skýrsluna.
Í skýrslunni er lögð áhersla á að forsenda þess að ná tökum á verðbólgu sé ábyrg stjórnun efnahagsmála. Bæta þurfi hagstjórn og auka virkni peningamálastefnu landsins með því að taka upp þjóðhagsvarúðartækja eins og það er orðað.
„Nefndin telur að tryggja verði fjölbreyttara framboð á óverðtryggðum lánum og skuldabréfum. Hluti af því er útgáfa ríkissjóðs og Íbúðalánasjóðs á óverðtryggðum skuldabréfum og að Íbúðalánasjóður bjóði upp á óverðtryggð húsnæðislán. Hvatt verði til sparnaðar vegna kaupa á fasteign og búseturétti. Síðast en ekki síst er mikilvægt að efla fjármálalæsi almennings, upplýsingamiðlun við sparnað og lántöku og neytendavernd til að sporna gegn ofskuldsetningu og áhættu tengda ólíkum lánaformum,“ að því er fram kemur í tilkynningu frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu.
Þrjú sérálit
Í nefndinni sátu fulltrúar allra þingflokka, efnahags- og viðskiptaráðuneytisins og fjármálaráðuneytisins, auk áheyrnarfulltrúa frá Seðlabanka Íslands. Þrjú sérálit koma fram í skýrslunni:
„Arinbjörn Sigurgeirsson, Eygló Harðardóttir, Hrólfur Ölvisson og Lilja Mósesdóttir standa að áliti þar sem lagt er til sem fyrsta skref í afnámi verðtryggingar að setja þak á hækkun verðtryggingar á ársgrundvelli. Jafnframt verði unnið að lækkun raunvaxta. Næstu skref í afnámi felast í innleiðingu óverðtryggðs húsnæðislánakerfis og fjölgun búsetuforma.
Vilhjálmur Þorsteinsson telur að stefna eigi að upptöku evru eftir inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Til lengri tíma litið muni vextir og verðbólga færast nær því sem gerist á evrusvæðinu og verðtrygging hverfa úr sögunni. Upptaka evru leiðir ekki sjálfkrafa til afnáms verðtryggingar á skuldabréfum en efna mætti til skiptaútboða verðtryggðra skuldabréfa yfir í óverðtryggð.
Pétur H. Blöndal leggur áherslu á að fráleitt sé að hafa tvær myntir í ekki stærra efnahagslífi, verðtryggða og óverðtryggða krónu. Óstöðugleiki og erfið hagstjórn, ótti sparifjáreigenda við verðbólguskot og lokaðir erlendir markaðir gera það að verkum að byggja verður upp peningalegar eignir með sparnaði til að tryggja innlent lánsfé. Því er ekki hægt að styðja afnám verðtryggingar á þessari stundu.“