Herjólfur mun sigla aukaferð frá Vestmannaeyjum klukkan 9 og til baka
frá Landeyjahöfn klukkan 10:30. Einnig verður farin aukaferð klukkan
19:30 frá Vestmannaeyjum og frá Landeyjahöfn klukkan 20:45.
Að sögn Eimskips tekur áður auglýst sumaráætlun Herjólfs gildi á sunnudag. Siglt verður fjórum til fimm sinnum á dag á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar.