Lokað fyrir umferð að Fimmvörðuhálsi

Eldgos á Fimmvörðuhálsi
Eldgos á Fimmvörðuhálsi Árni Sæberg

Umferð að Fimmvörðuhálsi er lokuð en ábúendur á Skógum hafa lokað fyrir umferð um bæjarhlaðið vegna ágangs þar. Á sama tíma er vegur inn að Baldvinsskála lokaður. Sunnlenska fréttablaðið segir frá þessu.

Hefur blaðið eftir Ísólfi Gylfa Pálmasyni, sveitarstjóra í Rangárþingi eystra, að sveitarstjórnin hafi fallið frá þeirri lausn að leggja nýtt vegstæði upp á Fimmvörðuháls frá Skógum eftir að sumarhúsaeigendur mótmæltu fyrirhugðum framkvæmdum.

Sex milljónum hafi verið úthlutað úr styrkvegasjóði í nýtt vegstæði og í bígerð sé að finna það.

Frétt Sunnlenska.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert