Rannsaka tilraun til manndráps

mbl.is/Júlíus

Kona á fimmtugsaldri er þungt haldin eftir alvarlega líkamsárás í austurborg Reykjavíkur í morgun.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að eiginmaður konunnar hafi verið handtekinn en málið er rannsakað sem tilraun til manndráps. Maðurinn er á sjötugsaldri.

Var konan endurlífguð á staðnum og var flutt á slysadeild. Er ástand hennar sagt alvarlegt.

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert