Krapasnjór er á Möðrudalsöræfum að sögn Vegagerðarinnar. Ökumaður sem ók þar um hafði samband við lögregluna á Húsavík í kvöld og sagði að vegurinn væri ófær ökutækjum sem væru þar á ferð á sumardekkjum. Á Dynjandisheiði er snjóþekja og éljagangur.
Hálkublettir eru á Klettshálsi, Svínadal og í Víkurskarði.
Annars staðar er greiðfært.