Hannes sækir vélarvana bát

Björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein.
Björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein.

Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Reykjanesbæ, Hannes Þ. Hafstein, er nú á leið að vélarvana bát sem staddur er um 40 sjómílur suðvestur af Reykjanesi.

Beðið var um aðstoð í morgun og fór björgunarskipið af stað um klukkan 8:30 og er búist við að það komi að bilaða bátnum um klukkan 13.
 
Fram kemur í tilkynningu að síðast þegar rætt hafi verið við skipverja, sem séu sex talsins, hafi skipið rekið vélarvana frá landi. Engin hætta er sögð vera á ferðum.

Veður sé þokkalegt á svæðinu en ölduhæð sé um 3-4 metrar þar sem björgunarskipið sé nú á ferð.
 
Ekki er búið að ákveða til hvaða hafnar bilaði báturinn verður dreginn, það ræðst af veðri og sjólagi síðar í dag en spár gera ráð fyrir versnandi veðri þegar líður á daginn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert