SA samþykkti kjarasamninga

Skrifað undir kjarasamningana.
Skrifað undir kjarasamningana.

Aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins samþykktu kjarasamningana, sem gerðir voru við Alþýðusamband Íslands í byrjun maí.

Samningarnir voru samþykktir með 75% greiddra atkvæða, 21,5% atkvæða voru greidd gegn samningunum en 3,5% tóku ekki afstöðu. Kosningaþátttaka var 57%.

Um var að ræða rafræna atkvæðagreiðslu og voru greidd atkvæði um alla samningana í einu á grundvelli atkvæðavægis aðildarfyrirtækja SA. 

Atkvæðagreiðslan gildir um kjarasamninga við eftirfarandi sambönd og félög:
Félag bókagerðarmanna, Flóabandalagið (Efling, Hlíf, VSFK), Landssamband íslenskra verslunarmanna, Matvís, Mjólkurfræðingafélag Íslands, Rafiðnaðarsamband Íslands, Samiðn, Starfsgreinasamband Íslands, VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna, VR og samninganefnd ASÍ.

Frestur til að tilkynna um afgreiðslu kjarasamninganna er til kl. 16:00 miðvikudaginn 25. maí en kynning á efni þeirra og atkvæðagreiðsla um gildistöku stendur nú yfir meðal stéttarfélaganna. Samningarnir taka ekki gildi fyrr en samþykki beggja samningsaðila liggur fyrir.

Eftir að SA skrifuðu undir kjarasamningana 5. maí voru gerðir sambærilegir kjarasamningar við Framsýn, Verkalýðsfélag Þórshafnar, Verkalýðsfélag Akraness, Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja og Verkstjórasamband Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert