Póstmannafélag Íslands undirritaði í dag nýjan kjarasamning við Íslandspóst sem felur í sér sambærilegar launahækkanir og aðildarfélög ASÍ sömdu um fyrr í mánuðnum. Áhersla var lögð á á hækkun lægstu launa sem verður framkvæmd með svonefndri launatryggingu.
Við gildistöku samningsins verður öllum félagsmönnum tryggð 182.000 kr. lágmarkslaun eftir fjögurra mánaða starf. Ef hækkun launa í viðkomandi flokki með 4,25% hækkun nær ekki 12.000 kr. mun launaflokkurinn hækka sem nemur þeirri upphæð. Með þeim hætti munu laun þeirra lægst launuðu hlutfallslega hækka mest.
Samkvæmt samningnum hækka laun félagsmanna PFÍ um allt að 20% á samningstímabilinu sem lýkur 31. janúar 2014, uppfylli stjórnvöld ákveðin skilyrði fyrir 22. júní 2011.
Verði samningurinn samþykktur fá félagsmenn eingreiðslu 1. júní n.k. að fjárhæð 50.000 kr.