Reyna að fá fólk til að kynna sér kjarasamninga

Stefán Einar Stefánsson er formaður VR.
Stefán Einar Stefánsson er formaður VR.

Á næstu dögum verða undirritaðir kjarasamningar bornir undir félagsmenn verkalýðsfélaga til samþykktar. Í ljósi þess að þátttaka í atkvæðagreiðslum um kjarasamninga er yfirleitt lítil ákvað VR að útbúa einnar mínútu myndband sem allir ættu að geta horft á og myndað sé skoðun.

Stjórn VR taldi brýnt að ná meiri þátttöku við afgreiðslu samninga sem festa kjör fólks til næstu þriggja ára. Í myndbandinu er samningurinn skýrður á myndrænan hátt. Til þess að dreifa myndbandinu til félagsmanna verður samskiptavefurinn Facebook notaður og er vonast VR til að yfirskriftin „hefur þú 1 mínútu“ nái til fólks.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert