Hvítt vor á Norðurlandi

Það var kuldalegt í Héðinsfirði í gærkvöldi og síðan hefur …
Það var kuldalegt í Héðinsfirði í gærkvöldi og síðan hefur bætt enn í snjókomuna. mbl.is/Sigurður Ægisson

Áfram er spáð snjókomu á Norður- og Austurlandi í dag og gæti færð á vegum spillst. Víða frysti á Norðausturlandi í nótt og er spáð næturfrosti aftur í nótt víða um land. 

Á Siglufirði og yfir í Héðinsfjörð var orðið grátt í gærvöldi og í gærkvöldi bætti  í snjókomuna. Er þar nú allt orðið hvítt og enn leiðindaveður, að sögn heimamanna, þótt dregið hafi úr úrkomunni.

Fuglar réðu ekki við neitt í verstu hviðunum, og létu berast undan norðanáttinni, og ljóst er að varp hefur spillst mjög, einkum hjá mófuglunum. Æðarkollan er hins vegar seig og álftin gefur sig ekki í hólmanum í Langeyrartjörninni. 

Hiti það sem af er þessum mánuði er enn tveimur stigum yfir meðalhita í maí, þótt nú hafi kuldakast staðið um hríð. Fram til 10. maí var mikil blíða og hitinn heilum fjórum stigum yfir meðaltali. 

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að um helgina verði kalt í veðri og búast megi við snjókomu á Norðausturlandi og éljum um norðvestanvert landið. Hann segir að í vorhreti af þessu tagi sé loftið yfirleitt þurrt, enda ættað af heimskautasvæðum. Ef sólin nái að skína fari hitinn upp fyrir frostmark og bræði þann snjó sem fellur. Um helgina verði hins vegar skýjað um norðanvert landið og þar verði því kalt og klárlega næturfrost.

Trausti Jónsson veðurfræðingur hefur á bloggsíðu sinni sagt frá kuldapolli fyrir norðan landið sem gæti um helgina gengið suður með vestanverðu landinu. Hann tekur fram að umfjöllunarefni hans sé ekki beinlínis spá, en þó möguleiki sem gæti komið upp.

Trausti segir að snjó festi nánast aldrei í Reykjavík eftir 20. maí, en ef það snjói í Reykjavík um helgina gæti svo farið að flestir svæfu það af sér og fæstir yrðu þess varir.

„Það er helst að árrisulir borgarbúar í hinum efri byggðum geti orðið varir við snjó,“ segir Trausti. Hann segir að þó svo kuldakastið, sem er frekar vægt, standi enn um sinn gæti hitastigið í mánuðinum endað í meðallagi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert