Í kjölfar endurskoðaðs mats á heimtum þrotabús Landsbankans, sem birt var í gær, hefur fjármálaráðuneytið uppfært mat sitt á kostnaði ríkissjóðs, miðað við að Icesave-samningarnir hefðu verið samþykktir í þjóðaratkvæðagreiðslu nú í apríl.
Segir ráðuneytið, að miðað við sömu reikningsaðferðir hafi hreinn kostnaður ríkissjóðs lækkað úr 32 milljarða króna miðað við árslok 2010, í 11 milljarða króna miðað við 31. mars.
Skilanefnd Landsbankans áætlar nú, að endurheimtur þrotabús bankans dugi fyrir 99% forgangskrafna.
Fjármálaráðuneytið segir, að Eftirlitsstofnun EFTA hafi nú til meðferðar meint samningsbrotamál á hendur íslensku stjórnvöldum. Sé þess vænst að niðurstaða stofnunarinnar liggi fyrir á næstu mánuðum og að eftir það kunni málið af fara fyrir dómstóla. Kostnaður ríkissjóðs vegna málsins er af þessum og fleiri ástæðum óviss.