Sjúkraliðið á Benzum

Páll Halldór Halldórsson, sölustjóri atvinnubíla hjá Öskju, og Marinó Már …
Páll Halldór Halldórsson, sölustjóri atvinnubíla hjá Öskju, og Marinó Már Marinósson, verkefnisstjóri hjá Rauða krossinum með nýju bílunum.

Rauði kross Íslands hefur fengið afhenta fjóra nýja sjúkrabíla af gerðinni Mercedes-Benz Sprinter. Breytingarvinna og smíði inn í bílunum var unnin af Sigurjóni Ólafsssyni á Ólafsfirði í samstarfi við Rauða krossinn og sjúkraflutningamenn.

Í tilkynningu segir að bílarnir hafi lága bilanatíðni, þeir séu sparneytnir en jafnframt nokkuð aflmikill miðað við þyngd. Verður einn af nýju sjúkrabílunum til sýnis á bílasýningu Bílgreinasambandsins í Fífunni um helgina.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert