„Það stígur upp hár hvítur gufubólstur yfir Vatnajökli,“ segir Örlygur Sigurjónsson leiðsögumaður sem staddur er vestan við Lómagnúp. Hann sagðist hafa séð bólsturinn myndast rúmlega fimmtán mínútur yfir sjö í kvöld.
Örlygur sagði greinilegt að gosið hefði verið mjög öflugt strax í upphafi. „Þetta er mjög tignarlegt að sjá í kvöldsólinni,“ sagði Örlygur, en léttskýjað er við jökulinn og útsýni gott. Hann segir að bólsturinn sé í stefnunni á Grímsvötn.
Örlygur sagði að mökkurinn tæki miklum breytingum og hækkaði gríðarlega hratt. „Það er greinileg aska í mekkinum. Hann er dökkgrár að hluta. Mökkurinn stígur rosalega hátt til himins. Ég gæti trúað að hann sé kominn upp í þriggja kílómetra hæð nú þegar,“ segir Örlygur sem var að koma af Hvannadalshnjúk í dag ásamt 10 manna hóp þegar hann sá að eldgos var hafið í jöklinum.