Bændur á Suðurlandi hafa í dag verið önnum kafnir við að sinna lambfé. Björgvin Harðarson, bóndi á Hunkubökkum, var síðdegis að fara með um 200 kindur í fjárhús á annarri jörð. Hann segir kindurnar hræddar, en vonar að þær beri ekki skaða af öskunni sem þær hafa verið í.
Um 800 lömb fæddust í vor á Hunkubökkum og var stór hluti þeirra kominn út þegar eldgosið hófst. Björgvin gat ekkert sinnt því í morgun þegar svart öskuský lagðist yfir svæðið. Upp úr kl 14 í dag fór að rofa til og fór Björgvin þá með fleira fólki að smala og gefa kindunum bæði hey og vatn. Hann segir þetta mikla vinnu, enda er húspláss takmarkað eftir að lömbin eru fædd.
Björgvin sagði að kindurnar virtust hræddar og jörmuðu mikið. Engin lömb hefðu hins vegar drepist og sagðist hann vona að tækist að koma í veg fyrir að þau bæru skaða af öskufallinu.
Svavar Helgason, sem er í svæðisstjórn björgunarsveita á Kirkjubæjarklaustri, sagði að bændur væru á öllum bæjum að sinna búfé. Björgunarsveitarmenn hefðu aðstoðað menn sem þess þyrftu. Hann sagði að tekist hefði að sinna öllum beiðnum um aðstoð við íbúa svæðisins.