Ekkert ferðaveður er nú milli Hafnar og Djúpavogs. Að sögn fjarskiptamiðstöðvar ríkislögreglustjóra hafa framrúður bíla brotnað vegna sandroks.
Fréttir hafa borist af því, að allar rúður hafi brotnað í bíl, sem var á ferð um Hvalnesskriður.
Lögreglan á Höfn ræður fólki frá því að fara þarna um eins og stendur.