Sigurlaug Linnet er 17 ára áhugaljósmyndari sem tók á laugardaginn mynd af gosinu í Grímsvötnum þar sem hún stóð á hlaðinu heima hjá sér.
Í gær birtist myndin síðan í mörgum helstu fjölmiðlum heims, t.d. New York Times, Huffington Post, Le Monde, El Pais, BBC, Die Zeit og Sky News.
Myndin birtist fyrst með frétt á mbl.is sem var lesin 240 þúsund sinnum á tæpum sólarhring.