Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum, segir að skyggni þar í morgun hafi verið um 300 metrar vegna öskufalls en síðan hafi komið hraustlegur blástur sem feykti öskumistrinu út á haf.
Mikil aska fór yfir Þorvaldseyri og Eyjafjallasveitina í gosinu úr Eyjafjallajökli í fyrra. Ólafur sagði, að Eyfellingar vonist til þess að sleppi betur frá gosinu í Grímsvötnum.
„Þetta er miklu meira gos en við fengum hér en þetta er lengra frá byggð. Áhrifin eru engu að síður mjög mikil."