Ráðherrar munu fara á gossvæðið og kynna sér aðstæður um leið og samgönguleiðir opnast. Þá mun samráðshópur undir stjórn almannavarna í dag hefja markvissa yfirferð yfir gossvæðið og síðar í þessari viku skila stjórnvöldum skýrslu um ástandið með tillögum um viðbrögð og framkvæmdir.
Ríkisstjórnin fjallaði í morgun um stöðu mála vegna eldgossins í Grímsvötnum. Á ríkisstjórnarfundinum var farið almennt yfir stöðu mála á gossvæðinu og þær afleiðingar sem gosið hefur þegar haft eða kann að hafa á næstunni.
Á fundinn komu Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, Jón
Bjartmarz, yfirlögregluþjónn, Víðir Reynisson, deildarstjóri hjá Almannavörnum
og Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði.
Þá lýsir ríkisstjórnin yfir mikilli ánægju með framlag allra þeirra sem lagt hafa hönd á plóg við að stuðla að bættu öryggi og afstýra hættu frá því að gosið í Grímsvötnum hófst. Segir í tilkynningu, að vinnubrögð þessara aðila hafi verið fumlaus og samvinna einstaklega góð.