Enn er svipaður kraftur í gosinu í Grímsvötnum og var í gær, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Úrkoma var á Vatnajökli í nótt og afar skýjað, þannig að ekki er hægt að greina hæð öskustróksins.
Gert er ráð fyrir að áfram verði norðan átt í dag en eitthvað dragi úr vindi og á morgun er spáð hæglætisveðri á landinu.