Háskólamenntuðum fjölgar

Háskólinn í Reykjavík.
Háskólinn í Reykjavík.

Árið 2010 höfðu rúmlega 56 þúsund manns á aldrinum 16-74 ára lokið háskólanámi, eða um fjórðungur íbúa á Íslandi á sama aldursbili. Háskólamenntuðum hefur fjölgað nokkuð frá árinu 2003, þegar þeir voru 22% íbúa.

Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofunni.

Um 36% íbúa hafa lokið starfs- og framhaldsmenntun, alls tæplega 81 þúsund manns. Þeir sem eingöngu hafa lokið styttra námi, þ.e. grunnmenntun, eru tæplega 86 þúsund talsins. Það eru 39% íbúa og hefur fækkað úr 42% árið 2003.

Hagstofan segir, að mikill munur sé á menntun íbúa höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Á höfuðborgarsvæðinu hafi 33% íbúa eingöngu lokið grunnmenntun en 30% lokið háskólamenntun. Utan höfuðborgarsvæðisins hafi 49% íbúa aðeins lokið grunnmenntun og 16% lokið háskólamenntun.

Yngri konur eru mun líklegri til að hafa lokið háskólanámi en yngri karlar. Rúmlega 41% 25-29 ára kvenna hafa lokið háskólamenntun en tæplega 23% karla á sama aldri. Að sama skapi hafa færri yngri konur en karlar eingöngu lokið grunnmenntun.

Í elstu aldursflokkunum snýst dæmið hins vegar við og þar er hlutfall kvenna sem hefur aðeins lokið grunnmenntun mun hærra en hlutfall karla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert