Með barnið í fanginu í framsætinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði um helgina ferð fólks,  sem var í bíl í austurborginni um helgina.

Við stýrið var karlmaður á fimmtugsaldri og við hlið hans í framsætinu var kona á svipuðum aldri sem hélt á barni á leikskólaaldri í fanginu en sama bílbeltið var spennt yfir þau bæði.

Fólkinu var gert að koma barninu fyrir í bílnum með viðeigandi og öruggum hætti og síðan fékk það að halda för sinni áfram.
 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert