Vegurinn enn lokaður

mbl.is/Ernir

Vegurinn á milli Víkur í Mýrdal og Freysness er enn lokaður vegna öskufoks. Ekki liggur fyrir hvenær vegurinn verður opnaður aftur. Nú stendur yfir fundur í samhæfingarmiðstöðinni í Skógarhlíð þar sem vísindamenn fara yfir stöðu mála með viðbragðsaðilum.

Samkvæmt upplýsingum frá samhæfingarmiðstöðinni er símat í gagni, en það hversu mikil aska fjúki um veginn stjórni því hvort og hvenær hægt verði að opna aftur fyrir umferð.

Tekið er fram að ekki sé blint alla leiðina frá Vík að Freysnesi. Hins vegar séu að sumir kaflar mjög slæmir og þar sé skyggni lítið sem ekkert. Menn taki þar af leiðandi enga áhættu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert