Í dag hafa loftgæði á höfuðborgarsvæðinu verið mjög mikil og vel undir heilsuverndarmörkum (50 µg/m3 að meðaltali á sólarhring). Hæsta gildi sem hefur mælst á Grensásvegi frá miðnætti er um 42 µg/m3.
Á Selfossi hafa svifryksmælingar farið lítið eitt hækkandi frá um klukkan 10 í morgun og um klukkan 13:00 var klukkustundargildið 85 µg/m3. Við þær aðstæður geta viðkvæmir einstaklingar fundið fyrir einhverjum einkennum. Á Raufarfelli eru gildin aðeins hærri og hafa verið eitthvað yfir 100 µg/m3 síðan í nótt. Hæsta gildi frá miðnætti er 132 µg/m3 og nú um klukkan 13:00 var svifrykið 123 µg/m3.
Í fréttatilkynningu frá Umhverfisstofnun segir að vert sé að minna á að ef svifryksgildi fara yfir 100 µg/m3 þá geta einstaklingar með undirliggjandi öndunarfæra- og/eða hjartasjúkdóma fundið fyrir auknum einkennum og ekki er mælt með mikilli veru utandyra.