Nýr fjármálastjóri Orkuveitunnar

Ingvar Stefánsson.
Ingvar Stefánsson.

Ingvar Stefánsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála hjá Orkuveitu Reykjavíkur.

Ingvar, sem hefur viðskiptafræðipróf á endurskoðunarsviði auk meistaragráðu í fjármálum og stjórnun, var valinn úr hópi 25 umsækjenda um starfið. Hann stýrir nú Íslandsbanka Fjármögnun og hefur störf hjá OR á næstu vikum.

Ingvar er 45 ára gamall, kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur matvælafræðingi og eiga þau tvo syni. Hann tekur við starfinu af Inga Jóhannesi Erlingssyni, sem tók tímabundið við starfinu í janúar síðastliðnum. Ingi Jóhannes mun áfram gegna starfi forstöðumanns fjár- og áhættustýringar hjá OR.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert