Vitað um PMMA-neyslu í fimm tilvikum

Staðfest hafa verið fimm tilvik hér á landi þar sem neytt var blandaðs metamfetamín, sem innihélt svokallað PMMA, sem er mjög eitrað. Í einu tilfellinu  var um að ræða konu um tvítugt, sem fannst látin í íbúð í Reykjavík í lok apríl.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir, að vitneskja sé um að fíkniefna var neytt í íbúð þar sem konan fannst látin. Hins vegar liggi endanleg niðurstaða varðandi dánarorsök konunnar ekki fyrir.

Lögreglan segir, að þótt tilvikin séu fimm þá eigi fjórir einstaklingar í hlut. Einn þeirra er karlmaður, sem var tekinn fyrir umferðarlagabrot tvisvar sinnum með stuttu millibili. Í bæði skiptin kom í ljós að hann var undir áhrifum fíkniefna, sem innihéldu PMMA.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segist hafa unnið að því að koma í veg fyrir frekari dreifingu á efninu og m.a. farið í  sjö húsleitir af þeim sökum. Við þær og fleiri aðgerðir tengdar rannsókninni hafi verið lagt hald á ýmiss fíkniefni, m.a. umrætt PMMA.

Ekki er samt hægt að fullyrða að lögreglan hafi komist yfir allt af hinu eitraða efni, sem hingað kom, og því er áfram eindregið varað við því að það kunni enn að vera á markaði hérlendis. Þá segir lögreglan það einnig vera verulegt áhyggjuefni, að PMMA geti borist hingað á nýjan leik.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert