Einn í gæsluvarðhald og annar hefur afplánun

mbl.is/Jakob Fannar

Karl á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 23. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. Þá hefur karl á fertugsaldri hafið afplánun á eftirstöðvum af 2 ára dómi sem hann fékk fyrir að bera eld að húsi við Kleppsveg í júní árið 2009.

Mennirnir eru félagar í vélhjólaklúbbnum Black Pistons.

Fram kemur í tilkynningu lögreglu að báðir mennirnir hafi verið handteknir í Hafnarfirði fyrr í mánuðinum eftir að lögreglu barst tilkynning um líkamsárás. Sá sem fyrir henni varð er karl á þrítugsaldri en hann var með áverka víða á líkamanum og er m.a. nefbrotinn.

Talið er að honum hafi verið haldið nauðugum í meira en hálfan sólarhring og að barsmíðarnar hafi farið fram á jafnvel fleiri en einum stað.

Á dvalarstað árásarmannanna var lagt hald á bæði fíkniefni og ýmis barefli. 

Sá mannanna sem nú hefur aftur hafið afplánun var talinn hafa rofið almennt skilorð reynslulausnar með aðkomu sinni að áðurnefndu líkamsárásar- og frelsissviptingarmáli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert