Veðursjáin sem fékkst að láni hjá ítölskum almannavörnum og Lidar-tækið hjá National Centre of Atmospheric Sciences í Bretlandi, gerðu það að verkum að hægt var að halda Keflavíkurflugvelli opnum yfir lengra tímabil en annars hefði verið.
Þetta er mat Veðurstofu Íslands, en stofnunin starfrækir umfangsmikinn búnað til þess að fylgjast með þeim þáttum náttúrunnar sem vakta þarf þegar eldgos verður. Meðal þess búnaðar eru færanleg veðursjá og afar þróað Lidar-leysigeislatæki til greiningar ösku, hvort tveggja nýlega tekið í notkun.
Veðurstofan stefnir að því að eignast veðursjá og Lidar-tæki eins og þau sem fengust að láni til að mæla öskufall frá Grímsvatnagosinu.
Veðurstofan vinnur í nánu samstarfi við London VAAC, ráðgjafastofnun sem gefur meðal annars út öskudreifingarspár. VAAC stöðvar (Volcanic Ash Advisory Centres) í heiminum eru níu. Samkvæmt upplýsingum frá Sigrúnu Karlsdóttur, náttúruvárstjóra Veðurstofu Íslands, nær umsjónarsvæði London VAAC yfir Ísland.
Í frétt frá Veðurstofunni segir að Veðurstofan veiti allar upplýsingar sem til eru um gosvirkni, gosmakkarhæð og hegðun gosmakkar á 3ja klukkustunda fresti og oftar þegar þörf krefur. Upplýsingar um gosmakkarhæð eru megin inntaksgögn í dreifingarreiknilíkan sem reiknar út dreifingu gosmakkar í andrúmsloftinu. London VAAC tekur við þessum upplýsingum, ber saman við mælingar og leiðréttir reikniniðurstöðurnar til að gefa sem besta spá um svæði þar sem vænta má ösku. Þetta eru leiðbeinandi upplýsingar sem veðurstofur nota til að gera viðvaranir fyrir flugmálayfirvöld. Ákvarðanir um veitingu flugheimilda eru teknar af viðeigandi yfirvaldi hvers ríkis.
Á Íslandi er það Isavia sem veitir flugheimildir innan íslenska flugumferðarsvæðisins í samræmi við reglur frá flugmálastjórn. London VAAC hefur ekki ákvörðunarvald um hvaða flugumsjónarsvæði eru opin eða lokuð. EUROCONTROL er evrópsk stofnun sem getur gripið inn í stjórnun flugumferðar til að betrumbæta umferð innan þess svæðis sem stofnunin nær til, en er ekki miðlæg flugumferðastjórn fyrir Evrópu. Hlutverk þeirrar stofnunar er fyrst og fremst að auka skilvirkni og flæði flugstarfsemi innan Evrópusvæðisins en hún tekur ekki ákvarðanir um opnun eða lokun loftrýmis. Ísland er ekki aðili að EUROCONTROL en situr reglulega fundi. Veðurstofur í Evrópu sjá þannig um útgáfu viðvarana, byggðum á leiðbeiningum frá London VAAC. Allar níu VAAC-stöðvarnar og veðurstofur vinna samkvæmt forskrift Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO).