Samþykkt í borgarráði að flytja Vatnsberann

Vatnsberinn eftir Ásmund Sveinsson.
Vatnsberinn eftir Ásmund Sveinsson. mbl.is/Árni Sæberg

Borgarráð hefur samþykkt að höggmyndin Vatnsberinn eftir Ásmund Sveinsson verði flutt ofan af holtinu við Veðurstofu Íslands og hún staðsett á horni Lækjargötu og Bankastrætis, samkvæmt tillögu Listasafns Reykjavíkur.

Ásmundur lauk við Vatnsberann árið 1937 og er hann eitt þekktasta verk hans. Talið er að Vatnsberanum hafi verið ætlað að standa nálægt Bernhöftsbrunninum, sem var síðasti brunnurinn í Reykjavík, til minningar um vatnsberana sem settu svip sinn á gamla miðbæinn í kringum aldamótin 1900.

Fram kemur í tilkynningu að brunnurinn hafi verið staðsettur í bakarabrekkunni svokölluðu, nánar tiltekið á Bakarastíg sem nú er Bankastræti. „Brunnurinn og bakarabrekkan draga nöfn sín af Tönnes Daniel Bernhöft bakara, sem rak bakarí þar sem nú er Bankastræti 2 allt frá 1845. Bernhöft var athafnamaður og lét grafa brunn vestan við bakaríið,“ segir í tilkynningunni.

„Þó nokkrar deilur komu upp þegar staðsetja átti Vatnsberann í borgarlandinu á sínum tíma, en höggmyndin hefur staðið á holtinu við Veðurstofu Íslands frá árinu 1967. Segja má að styttan verði komin heim þegar búið verður að koma henni fyrir á horni Lækjargötu og Bankastrætis en unnið er að útfærslu flutningsins sem fram mun fara á næstu vikum,“ segir ennfremur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert