Allt er í fullum blóma í Mýrdalnum eftir eldgosið í Grímsvötnum að sögn fréttaritara Morgunblaðsins í Vík í Mýrdal, eins og meðfylgjandi mynd sýnir.
Líkt og fram hefur komið minnkaði órói, sem fram kemur á jarðskjálftamælum á Grímsfjalli, verulega í fyrradag og fyrrinótt.
Þá hefur verið unnið að fullum krafti við uppbyggingar- og hreinsunarstarf á
áhrifasvæði eldgossins og í gær var opnuð Þjónustumiðstöð almannavarna í
grunnskólanum á Kirkjubæjarklaustri.