Með stærstu skipum sumarsins

Skemmtiferðaskipið MSC Poesia við Oddeyrarbryggju á Akureyri í dag.
Skemmtiferðaskipið MSC Poesia við Oddeyrarbryggju á Akureyri í dag. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

MSC Poesia, eitt stærsta skemmtiferðaskipið sem kemur við á Akureyri í sumar, lagðist að Oddeyrarbryggju í morgun. Poesia er 300 metra langt, 92.600 tonn og um 2.500 farþegar eru um borð  og áhöfnina skipa tæplega 1.000 manns.

Þetta er þriðja stærsta skipið sem kemur til bæjarins í sumar. Stærri eru Crown Princess (116.000 tonn) sem kemur eftir tæpan hálfan mánuð og Costa Pasifica (114.000 tonn) sem kemur 15. júní.

Skipið heldur frá Akureyri í kvöld áleiðis til Ísafjarðar og síðasti viðkomustaðurinn verður Reykjavík.

 Fjöldi ferðamanna skoðaði sig um á Akureyri í dag þó ekki væri sérlega sumarlegt um að litast. Margir fóru einnig í skoðunarferðir með langferðabílum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert