Lífeyrissjóðirnir fjórtán, sem undanfarna mánuði hafa skoðað möguleg kaup á hlut í HS Orku hafa í kjölfar ítarlegrar skoðunar gengið frá samningum um kaupin við dótturfélag Alterra Power (áður Magma Energy).
Lífeyrissjóðirnir hafa stofnað samlagshlutafélagið Jarðvarma slhf. til að halda utan um eignarhlutinn fyrir hönd sjóðanna. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Þeir lífeyrissjóðir sem standa að baki kaupunum eru Almenni
lífeyrissjóðurinn, Eftirlaunasjóður FÍA, Festa lífeyrissjóður, Frjálsi
lífeyrissjóðurinn, Gildi lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður bænda,
Lífeyrissjóður starfsmanna Búnaðarbanka Íslands, Lífeyrissjóður
starfsmanna ríkisins – A deild, Lífeyrissjóður verkfræðinga,
Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja, Stafir
lífeyrissjóður, Stapi lífeyrissjóður og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda.
Fram kemur að lífeyrissjóðirnir hafi skoðað fjárfestingu í HS Orku um nokkurt skeið og hafi ákveðið um miðjan apríl sl. að halda áfram viðræðum við Alterra Power um mögulega fjárfestingu í HS Orku og hefja áreiðanleikakönnun á félaginu. Þá hafi þegar legið fyrir helstu útlínur viðskiptanna og skilmálar.
„Samkvæmt samkomulaginu kaupir Jarðvarmi 25 prósent hlutafjár í HS Orku á genginu 4,63 krónur á hlut. Kaupverðið nemur því tæpum 8,1 milljarði króna og er miðað við að greiðslan fari fram á morgun 1. júní. Jarðvarmi fær jafnframt kauprétt á nýjum hlutum í HS Orku á genginu 5,35 krónur á hlut en verði kauprétturinn nýttur að fullu verður eignarhlutur Jarðvarma í HS Orku 33,4 prósent. Samkomulagið felur einnig í sér rétt Jarðvarma til að skrá sig fyrir allt að helmingi heildarhlutafjár HS Orku með kaupum á nýjum hlutum sem HS Orka kann að gefa út í framtíðinni.
Jarðvarmi mun tilnefna tvo af fimm stjórnarmönnum HS Orku. Rík minnihlutavernd, virk þátttaka í stjórn félagsins og formleg aðkoma að öllum meiriháttar ákvörðunum á vegum félagsins eru meðal skilmála viðskiptanna og helst það fyrirkomulag ótímabundið, nemi eignarhlutur Jarðvarma í HS Orku meira en 22,5 prósentum heildarhlutafjár,“ segir í tilkynningunni.
Þá kemur fram að ráðgjafi lífeyrissjóðanna í þessum viðskiptum hafi verið Arctica Finance, sem hafi haft yfirumsjón með kaupferlinu. LEX hafði umsjón með lögfræðilegri áreiðanleikakönnun og lögfræðiráðgjöf við samningagerð, PwC sá um fjárhagslega og skattalega áreiðanleikakönnun og Reykjavík Geothermal sá um jarðfræðilega, tæknilega og rekstrarlega áreiðanleikakönnun.