Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 45 ökumanna á Háteigsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, við Vatnsholt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 120 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða.
Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km hraði en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.
Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið hátt, eða 33-43% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið á bilinu 42-44 km/klst.