Rafmagnsveitur ríkisins segja, að ekki verði farið í neinar rannsóknir í Grændal í Ölfusi fyrr en vinnu við svonefnda rammaáætlun sé lokið. Hafi Orkustofnun samþykkt það.
Landvernd gagnrýndi í gær, að Orkustofnun hefði veitt leyfi til borana í Grændal í Ölfusi í tengslum við jarðhitarannsóknir. Grændalur sé svæði með verndargildi á heimsvísu og verðskuldi hámarksvernd að mati Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Sunnlensk Orka ehf., dótturfélag RARIK, fékk þann 10. maí rannsóknarleyfi sem nær til jarðhita, grunnvatns o.fl. í Grændal í Ölfusi. Í yfirlýsingu, sem Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK, skrifar undir, segir að ekki verði farið í neinar rannsóknir á svæðinu fyrr en vinnu við rammaáætlun sé lokið.