Flugvél frá Iceland Express lendir í Boston í fyrsta sinn síðdegis í dag. Er borgin annar áfangastaður félagsins í Bandaríkjunum en Iceland Express hefur flogið milli Keflavíkur og New York.
Flogið verður til Boston á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum, alls fjórum sinnum í viku.
Í næstu viku mun Iceland Express hefja áætlunarflug til Chicago.