Tvenn hjón hófu í morgun að hlaupa hringinn um landið til að safna áheitum fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Ætla þau að leggja að baki 100 km á dag í fimmtán daga.
Signý Gunnarsdóttir og Sveinn Benedikt
Rögnvaldsson hafa fylgt syni sínum Gunnari Hrafni eða Krumma í gegnum
erfiða meðferð við hvítblæði og birtist áhrifarík frásögn af því í máli
og myndum í Sunnudagsmogganum nýlega.
Þau hlaupa hringinn ásamt systur Sveins og mági, Ölmu Maríu Rögnvaldsdóttur og Guðmundi Guðnasyni. Dagbókarfærslur verða á vefsíðunni www.mfbm.is og Facebook og þar getur fólk fylgst með ferðalaginu.
Fólk getur styrkt framtakið með því að senda sms í símanúmerin 904-1001 (1000 kr.), 904-1003 (3000 kr.) og 904-1005 (5000 kr.) eða komið með áheit á vefsíðu söfnunarinnar.
Erfitt að horfa á Krumma líða illa